Aðalvalmynd

Auglýsing

Klukkan

Myndir

31. maí 2007 klukkan 12:39
Tyrfingur sendi hér inn, sem komment, link frá honum Ármanni. Tek mér það bessaleyfi (að ósk Tyrfings) að setja þetta inn sem sérstakt blogg, því það er gaman að skoða þetta og fleiri sjá síðuna með þessum hætti. (Eins setti ég linkinn hér til hliðar í 76 árgangur tjáir sig.)


Hér eru myndir frá 18. maí.

Myndasíða Ármanns




Takk Ármann (og Tyrfingur)


Gutta

Nefndin 2012!

29. maí 2007 klukkan 22:01
Bara svona til að hafa þetta skjalfest þá kemur hér listinn yfir næstu nefnd.

Guðmundur Karl Sigurdórsson, 10. Á.K.H. FORMAÐUR

Guðrún María Sæmundsdóttir, 10. S.R.S.

Guðfinna Helgadóttir, 10. Þ.K.

Ingvar Guðmundsson, 10. F.W.

Róbert Sverrisson, 10. A.J.

Vonandi klikkar þetta ekki.
Kv. Ragna Björk

Takk fyrir síðast

24. maí 2007 klukkan 09:46
Hæ öll!

Takk fyrir síðast öll sömul!  Mikið var þetta gaman hjá okkur á föstudaginn, gaman að hittast.  Ryfja upp gamla tíma, hlæja og hafa gaman saman langt fram á nótt, alla vega einhver okkar.  Samt finnst mér eins og ég hafi ekki talað við nógu marga, kannski er ég bara gleymin, enda komin á þann aldur Glottandi  Jæja, ef við náðum ekki að gera allt sem við ætluðum að gera, þá eru nú fimm ár ekki lengi að líða.  Ég er strax farin að hlakka til næsta sem ég veit að verður pottþétt í alla staði, enda úrvals fólk í næstu nefnd, sem ég vissi að tók strax til starfa svo það er von á góðu.  Góðar stundir elskurnar mínar, lifið heil!  Við getum þó endilega haldið þessari síður svolítið gangandi, fengið Ármann til að setja sönnunargögn kvöldsins á síðuna og fleira í þeim dúr.  Bless í bili.Glottandi
Gugga 1o. ÁKH.

Ást

13. maí 2007 klukkan 20:16

Kærar þakkir fyrir klukkið Dagrún. Það runnu á mig tvær grímur við þetta góða boð því ég mundi fyrst ekki eftir neinu nema blóðnösum, rifrildum, slagsmálum, kaffæringum, feitabollukomplexum og hnúti í maganum þegar ég hugsaði til barnaskólaáranna. Nei, djók, þetta var ágætt í nokkar vikur eftir áramót í 4. bekk.


Ég vissi ekki að Dagrún hefði verið skotin í Tyrfingi, hún hefur greinilega kunnað að þegja. Ég hef aldrei kunnað að þegja, það vissu sko allir að ég var skotin í Kára. Eftirfarandi saga útskýrir kannski hvers vegna:


Eitt kalt vetrarkvöld í 2. bekk vorum við, ég og tvær ónefndar vinkonur mínar, staddar heima hjá annarri þeirra og Kári barst í tal. Kom þá uppúr krafsinu að við vorum allar skotnar í honum. Ég man ennþá þegar ég reis upp og sagði: “Stelpur, það er bara eitt að gera, hann verður að fá að vita þetta svo hann geti valið á milli okkar”. (Já, einmitt).


Og við skrifuðum bréf. Í bréfinu stóð: “Kári við elskum þig” (og svo nöfn sem verða ekki gefin upp). Við stungum hinu forboðna bréfi innum bréfalúguna heima hjá Kára í Reyrhaganum og hlupum svo heim með hjartað í hálsinum.


Eftir smá umhugsun og yfirlegu þegar heim var komið fannst okkur að skilaboðin hefðu kannski ekki verið nægilega skýr. Svo við skrifuðum annað bréf. Þar stóð: “Og við vonum að þú elskir okkur líka!”. Við röltum ferð númer tvö yfir Nauthagann og vorum að bauka við að troða seinna bréfinu með köldum fingrum innum bréfalúguna á Reyrhaga 2 þegar við heyrðum kallað dimmum karlmannsrómi hinumegin við götuna: “Krakkar! Hvurn andskotann eruð þið að gera?” Og við erum ekki að tala um neitt vinalegan, lágstemmdan spurningarfíling, maðurinn var greinilega bæði reiður og æstur.


Eitthvað gekk okkur illa að troða bréfinu innum lúguna, panikkið jókst, reiði maðurinn var lagður af stað yfir götuna og nú heyrðist umgangur inni hjá Kára, einhver kveikti ljósið í forstofunni, nú voru good advice animals eins og konan sagði. Við trylltumst úr hræðslu, fleygðum bréfinu frá okkur á stéttina og settum nýtt héraðsmet í 400 m hlaupi þegar við hlupum eins og fjandinn væri á hælum okkar útí Heimahaga aftur.


Ég þorði ekki í sundlaugina í marga mánuði eftir þetta. Fjandinn á hælum okkar var Sigmundur Stefánsson fyrrverandi sundlaugarstjóri, mjög ljúfur og dagfarsprúður maður. Hann hefur örugglega haldið að við værum vandræðabörn með spreybrúsa og að sjálfsögðu verja menn nágranna sína, þannig var það alltaf í Högunum.


Það þarf varla að taka það fram að Kári greyið var hálf kindarlegur í skólanum daginn eftir. Hvernig eiga drengir á áttunda ári að kunna að höndla svona aðgangshart kvenfólk?


Að lokum, fyrst við erum að tala um ”hópskot” þá vil ég að það komi fram í þættinum að ég tók ekki þátt í Hebba-maníunni sem gekk yfir landið og miðin þegar við vorum í 5. bekk. Það væri gaman að gera létta könnun á því hversu margar af stelpunum í öllum bekkjum voru með “Hebbi Maradona Love Satt” krotað inní hendina á sér þann veturinn. Ég veit fyrir víst að bréfberakonan í Grashaganum fékk vöðvabólgu og herðakistil af því að burðast með öll ástarbréfin sem stíluð voru á folann á tólf :)


Ég ætla að klukka minn góða félaga og kæra vin, Axel Óla Ægisson.

 

Hlakka gebbað til að hitta ykkur á föstudaginn!

Ágústa Rúnars.

Þið miðaldadraugar...

12. maí 2007 klukkan 19:15
Jæja, þá hef ég heldur betur dottið í lukkupottinn.... að fá að láta ljós mitt skína á bloggsíðunni. Mig langar til að fá að segja frá nokkrum skondnum atriðum sem ég man eftir og þau eru eftirfarandi:
  • Þegar ég var að byrja í 6 ára bekk þá var ég strax orðin skotinn í strák og það var Tyrfingur. Þegar ég mætti einhvern af fyrstu dögunum var laust sæti við hliðina á Tyrfingi og Iðunn kennari sagði mér að setjast hjá honum. Ég hélt nú ekki, ætlaði sko ekki að fara að sitja hjá einhverjum sem ég væri skotin í!!!
  • Í tíma hjá Óskari mætti ég í skólann með hring sem á var stór demantur, nema hvað að demanturinn var brjóstsykur. Hebbi fór til Óskars og kvartaði yfir því að ég væri með nammi í skólanum og ég var því látinn setja hringinn ofan í tösku svo allir væru sáttir....nema ég að sjálfsögðu.
  • Munið þið eftir því að Guðrún Olga kennari var alltaf að láta okkur fara í “Jósep segir”? HAHAHAHA.
  • Ágústa var (er) gáfaðri en bekkjarfélagarnir og sú eina sem var færð upp um bekk. Á ganginum sagði hún eitt sinn um leið og hún stappaði niður löppunum “ég þoli ekki krakkana í mínum bekk, þau eru MIÐALDADRAUGAR”. Þetta var ca. í 8 ára bekk.......já égsagði 8 ára bekk J.
 Að lokum ætla ég að klukka mömmuna í bekknum, Ágústu Rúnarsdóttur.Kveðja, Dagrún Ingvars

Klukkuleikurinn

12. maí 2007 klukkan 13:11

Ég ætla nú bara að gerast svo djörf að klukka sjálfa mig (þvílíkur egóisti) þar sem þessi “klukkuleikur” staðnaði eitthvað og í framhaldi að klukka einhvern, líst ykkur ekki vel á það?  Á ekki annars að vera smá hreyfing á þessari síðu?

Þetta atvik er mér alltaf minnistætt en það nær þó aðeins lengra aftur í tímann en gaggó.....alveg aftur til barnaskólans en þó var ég 10+ 
Það var þannig að það var eitthvað mikið stirrt á milli okkar Axel Óla í einhvern tíma og vorum við alltaf að jagast. Ég get nú alveg viðurkennt að þetta var gjörsamlega mér að kenna þar sem ég var alltaf að stríða honum sem augljóslega leiddi til þess að hann var orðinn hundleiður á mér. Svo var það í eitt skiptið sem mín var alveg í banastuði og kallaði eitthvað til hans...... nema hvað að þarna var honum nóg boðið og hljóp á eftir mér og ætlaði aldeilis að láta mig kenna á því. .......Ég hleyp eins og fætur toguðu alveg skíthrædd við hann, enda stór og sterkur strákur á ferð og ætla að ná að læsa mig inn á kvennaklósetti ....... hann nær mér áður en ég næ að læsa og ............ sem betur fer fyrir mig kemur Hulda kennari auga á okkur........... Hún rífur okkur í sundur og segir þessa snilldarsetningu sem gjörsamlega eyddi öllum fjandskap á milli okkar á stundinni.............. þið vitið að þegar strákur og stelpa rífast mikið þegar þau eru yngri enda þau sem hjón.........Maður er mjög auðtrúa á þessum árum, he he
 

Svo reyndar langar mig að varpa fram einni spurningu sem vonandi einhver hefur svar við eða þorir að viðurkenna að hafi gert en hún Hanna vinkona mín hélt alltaf að þetta atvik hafi verið mér að kenna sem var ekki......Hver kjaftaði því í kennarann að Hanna og Ragnheiður hefðu farið út í Guðnabakarí í frímínútum að kaupa sér nesti sem leiddi til þess að þær voru reknar heim úr skólanum ????  (það mátti ekki fara út af skólalóðinni á skólatíma) 


Jæja, nú ætla ég að klukka hana stórvinkonu mína Dagrúnu Ingvarsdóttir sem hefur nú alltaf frá einhverju skemmtilegu að segja.
Kveðja Ásta Björk

Allt hefst þetta nú

09. maí 2007 klukkan 23:54
Það var fundað á Krúsinni áðan og þetta er allt að gerast.  Símar nefndarinnar verða rauðglóandi næstu daga, eitthvað á að reyna að hringja út.  Svo verið viðbúin símtali og harðorðum ákskorunum að mæta, enda til mikils að vinna.  Nú syng ég eins og Helgi Björns stórvinur minn og Jóa, ég skal setja nöfnin inn á morgun:  ,,Ef ég þá nenni''.  Ég minni á að enn er hægt að leggja inn og upplýsingar um það eru hér í bloggfærslu rétt fyrir neðan.  Við ættum að ná 76 fjöldanum en þó væri gott að toppa það með því að bæta árunum 15 við og ná þannig 91, en það er kannski til of mikils mælst.
Við skjáumst þar til við sjáumst 18. maí nk. eða eftir rétt tæpa viku.

Gugga A. 10. Á.K.H.

Á ekki að mæta?

07. maí 2007 klukkan 14:29
Jæja, börnin góð. Þá er skráningarfresturinn útrunninn. Því miður hafa allt of fáir skráð sig sem er auðvitað alveg úr karakter fyrir þennan árgang. Hvað er málið? Allir að borga STRAX svo ekki þurfi að aflýsa geiminu.

Til upprifjunar

27. apríl 2007 klukkan 09:34
Fyrir þá sem eru búnir að týna bréfinu eða fengu það aldrei eru hér helstu upplýsingar varðandi reikningsnúmer og fleira.

Það kostar 3.500 krónur á höfuð.

Greiðsla fer inn á reikning: 325-26-576

Kennitala: 230776-3269

Staðfesting (t.d. kvittun úr netbanka) sendist á netfangið: argangur76@hotmail.com

Takið fram hvort greitt er fyrir einn eða tvo ef ekki er send kvittun úr netbanka.

Kveðja
Ragna Björk

Tíminn líður hratt...

27. apríl 2007 klukkan 08:55
Jæja, gott fólk. Vildi bara minna ykkur á að það er bara vika til stefnu fyrir þá sem eiga eftir að borga. Siðustu forvöð til að skrá sig er næsta föstudag, þann 4. maí. Endilega skráið ykkur sem fyrst. Allir að mæta:)

Bestu kveðjur
Ragna Björk

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...